Þuríður Pálsdóttir

                                                  Þuríður Pálsdóttir. Þuríður Pálsdóttir var fædd í Seglbúðum í Landbroti 23 júní 1890 Hún flutti með foreldrum sínum að Hrífunesi í Skaftártungu árið 1891 og ólst þar upp og átti heima til ársins 1911 er hún giftist Jóhannesi Guðmundssyni og fluttist til hans að Söndum í Meðallandi.       Þar átti hún heima til ársins 1919 en þá flutti hún vegna afleiðinga Kötlugossins að Herjólfsstöðum í Álftaveri og átti þar heima til æviloka.              Þau hjón áttu ellefu börn sem upp komust til fullorðins ára utan eitt sem dó ársgamalt. Áður en Þuríður flutti að Söndum stundaði hún nám í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún lést árið 1974.                             Hér segir Þuríður frá einum degi ævi sinnar. Það er 12. október 1918 klukkan er tæpt sex að morgni. Ég vakna við það að þeir eru að tala saman synir mínir sem eru fimm,sá elsti á sjötta ári,sá yngsti er á öðru ári,sumir vilja klæða sig,aðrir biðja um pelann sinn og svo er spurt hvort pabbi sé kominn úr Vík en hann fór með tvo afsláttarhesta til Víkur og ætlaði að senda kjötið til Vestmannaeyja. Klukkan rúmlega sjö eru flestir komnir á fætur og farnir til vinnu sinnar. Karlmenn þrír,Bjarni bróðir minn,Magnús Sigurbergsson frá Háu Kotey í Meðallandi hann var milli fermingar og tvítugs, Sigurður Sigurðsson frá Láu Kotey 14 eða 15 ára,þeir fóru að keyra út sumarmykju úr haughúsinu.    Stúlkurnar voru þrjár,allt systur frá Háu Kotey,ein fór í fjósið að mjólka og láta út kýrnar,ein fór að fást við eldhúsverkin,og sú þriðja að hjálpa mér að klæða það sem óklætt var af bræðrunum og búa um rúmin. Það lá vel á öllum þennan morgun,veðrið dásamlegt og við að sjá fyrir endaná að ganga frá slátrinu úr um hundrað fjár,mest lömbum. Uppúr hádegi fórum við að taka eftir óvanalega miklum skruggum sem alltaf ágerðust,töldu víst flestir að þetta væru svona stórkostlegar skruggur. Þegar mér fannst keyra framúr hófi með lætin fór ég út til Bjarna og fór að talavið hann um hvað þetta væru óvanaleg læti,segir hann þá að þetta séu bara svona stórkostlegar skruggur,fór ég svo inn í eldhús og hélt áfram við það sem ég var að gera.Þeir voru að moka í síðasta vagninn og tæma hann,fóru svo með hestinn og vagninn í Lygnuvík í fljótinu austan við túnið til þess að þvo mykjuna úr vagnkassanum og sleppa hestinum. Þegar þeir voru búnir að þessu kemur Bjarni inn og segir að það sé farið að rigna ösku og Katla sé komin austur í Skálm. Þegar ég kem út sé ég hvar féð er á hörkuferð heim, við heyrðum jarmið í því þar sem það kom í hópum heim á leið til fjárhúsanna. Kýrnar komu heim veg,voru komnar heim undir,ég bað Manga að fara og láta inn kýrnar,hann rekur þær inn og lokar fjósinu,án þess að binda þær. Bjarni taldi að ekki væri víst að okkur væri óhætt hérna í bænum og að við ættum að reyna að komast austur yfir fljótið. Sirri tók beisli og ætlaði að taka hross sem voru á túninu rétt við götuna en þegar hann kom til hrossanna voru þau öll fæld,þá vorum við komin austur að fljóti. Bjarni með yngsta drenginn berandi og leiddi þann elsta,systurnar báru sinn drenginn hver og ég bar fataböggul,það voru sparifötin bræðranna, þau lágu á kommóðunni austur í stofu. Ég greip þar klút og batt utan um þau. Við vorum fyrir stuttu búin að færa einn drenginn úr blautum buxum og sokkum,hann var uppi í baðstofu að leika sér þegar hann var vafinn í teppi og borinn alla leið austur að Háu Kotey. Elsti sonurinn sem Bjarni leiddi týndi sokk og skó af öðrum fæti á leiðinni austur að Kotey.  Þegar við komum austur yfir mitt fljót komu á móti okkur bóndinn í Sandaseli,Magnús Oddsson og vinnumaður hans,Gísli Tómasson og tóku sinn drenginn hvor. Þá var ein systirin eftir með drenginn sem hún bar(ekki man ég hver þeirra það var). Hún sagði að þá hefði sér fundist að hún ætlaði að hníga niður. Þegar við vorum komin á austurbakkann á fljótinu voru jakar og vatn komin í götuna vestanmeginn. Við héldum áfram gangandi alla leið að Háu Kotey þar sem við dvöldum í rúma viku. Það var margt manna saman komið það kvöld á baðstofu- gólfinu í Háu Kotey hjá Sigurbergi Einarssyni og konu hans Árnýju Eiríksdóttir.   Minnisstæðastur er mér þó einn gesturinn,það var Stefán Ingimundarson á Rofabæ hreppstjóri Meðallendinga. Hann hafði verið rúmliggjandi um tíma,fólk þorði ekki annað en að koma honum að Háu Kotey því sá bær stóð hæst af bæjunum þar í kring. Ég man þegar hann var leiddur og studdur inn á baðstofugólfið,ég hjálpaði til þess að koma honum í rúmið austan við gluggan. Ekki man ég hvað hann var lengi þar,hann var ekki lengi í Kotey áður en hann var fluttur heim til sín en hann komst aldrei á fætur aftur.Ekkert man ég hvort ég fékk skinn í skó á drenginn minn um kvöldið eða daginn eftir.     Þegar við komum að Sandaseli varð heimilisfólkið þaðan okkur samferða austur að Kotey og gisti þar um nóttina Ég man nú ekki hvort ég nokkurn tíma þakkaði fólkinu sem mest hjálpaði þennan dag og marga erfiðisdaga sem fylgdu í kjölfarið. Ef til vill gerði ég það aldrei upphátt en marg oft þar sem ekki heyrir nema sá sem allt heyrir. Þuríður Pálsdóttir var móðir mín.                   Gissur Jóhannesson. Kt.131228-3689.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gissur Þórður Jóhannesson

Höfundur

Gissur Þórður Jóhannesson
Gissur Þórður Jóhannesson
Ég er bara gamall karl sem hefur gaman af að fylgjast með og skifta mér af ýmsum málum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Lára, Gissur og Lilla, 14. febr. 2006 002
  • Hólmsárfoss
  • Hólmsárfoss 3

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 16621

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband